Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 676/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 676/2021

Fimmtudaginn 17. mars 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 16. desember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. desember 2021, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 6. nóvember 2021. Í vottorði fyrrverandi vinnuveitanda kæranda kemur fram að kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum. Þann 17. nóvember 2021 bárust Vinnumálastofnun skýringar kæranda vegna uppsagnarinnar. Með ákvörðun, dags. 16. desember 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hans hjá fyrrum vinnuveitanda væri bótaréttur hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 16. desember 2021. Með bréfi, dags. 21. desember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 15. febrúar 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. febrúar 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Kærandi telji að það sé gild ástæða fyrir uppsögn þegar upp komi ágreiningur á vinnustað sem sé með öllu óleysanlegur.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 6. nóvember 2021. Meðal gagna í málinu sé staðfesting á starfstímabili frá fyrrum vinnuveitanda kæranda, B. Þar komi fram að kærandi hafi sjálfur sagt upp störfum en starfi hans hjá B hafi lokið þann 30. september 2021. Þann 17. nóvember 2021 hafi kærandi veitt Vinnumálastofnun skýringar vegna starfsloka sinna hjá B. Kærandi hafi sagt ástæðu uppsagnar sinnar vera vegna ágreinings við yfirmann. Jafnframt hafi kærandi greint frá því að á árinu 2021 hefðu sex aðrir starfsmenn yfirgefið fyrirtækið af sömu ástæðu. Samhliða skýringum sínum hafi kærandi afhent Vinnumálastofnun undirritaða yfirlýsingu vegna starfsloka. Með undirritun sinni hafi kærandi staðfest að hann væri meðvitaður um hugsanleg viðurlög sem hann kynni að sæta vegna starfsloka sinna. Kærandi hafi jafnframt staðfest að hann hefði lagt fram skýringar vegna starfsloka sinna og að hann teldi þær skýringar fullnægjandi.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 segi að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum en hafi sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildi um þann sem missi starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur eigi sök á.

Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæðinu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess væri ekki gefinn kostur á að fólk segði upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður lægju að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf væri ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggi að baki uppsögn séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun væri að ræða væri Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fyrir liggi að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu en ágreiningur snúi að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn í starfi teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi í fyrri úrskurðum sínum talið að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna. Þær skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun um ástæðu uppsagnar í starfi lúti að því að hann hafi átt í ágreiningi við fyrrum yfirmann sinn. Þá hafi kærandi greint frá því að fleiri starfsmenn fyrirtækisins hafi látið af störfum af sömu ástæðu. Í slíkum tilvikum hafi í framkvæmd verið gerð sú krafa til launamanna að þeir nýti sér öll tiltæk úrræði til úrbóta, svo sem að leita til síns stéttarfélags eða tryggja sér annað starf, áður en þeir ákveði að segja starfi sínu lausu. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki tryggt sér annað starf áður en hann hafi sagt starfi sínu lausu. Þá verði ekki ráðið af gögnum málsins að hann hafi leitað til síns stéttarfélags. Því sé ljóst að kærandi hafi ekki nýtt sér öll tiltæk úrræði til úrbóta áður en hann hafi sagt starfi sínu lausu.

Það sé því afstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar vegna starfsloka sinna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi sagt upp störfum vegna ágreinings við yfirmann og að sex aðrir starfsmenn hafi gert það sama á árinu 2021. Aðstæður kæranda lúta þannig að stöðu hans á vinnustaðnum. Úrskurðarnefndin telur að gera verði þá kröfu til starfsmanna að þeir leiti lausna á þeim vanda sem til staðar er, svo sem að leita til síns stéttarfélags, áður en þeir ákveða að segja starfi sínu lausu.

Af gögnum málsins verður ekki séð að kærandi hafi leitað eftir úrbótum áður en hann sagði starfi sínu lausu. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að ástæður kæranda fyrir starfslokum hans séu ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. desember 2021, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum